Sjö bátar mættu til leiks í árlegu Áramótamóti SÍL á Sundunum við Reykjavík. Veður lék við keppendur og kepptu þeir í þremur léttum siglingum.
Elías Burgos sigraði eftir samanlagða sigra í tveimur siglingum. Þátttakendur þökkuðu fyrir frábæran upptakt að nýju keppnistímabili.