Æfingadagskrá byrjar að morgni mánudagsins 6. júlí og æft verður alla daga fram á fimmtudag en á föstudag og laugardag verður æfingabúðamót. Mælst er til að þátttakendur komi til Akraness sunnudaginn 5. júlí og geri báta sína sjóklára þann dag. Nánari dagskrá er að finna hér á eftir. Áríðandi er að fólk skrái sig fyrir Þriðjudagin 30. júní og gott væri að vita hvort börn verða ein eða með foreldrum og hvort þau gista í sameiginlegri aðstöðu eða ekki.
Aðstaðan:
Siglingaaðstaðan á Akranesi er sandfjaran við Langasand. Sjósetning verður við Lindina eða í Akranes höfn eftir veðri. Gistiaðstaða fyrir þátttakendur og aðstandendur þeirra verður í sal í frístundamiðstöðinni Þorpið við Þjóðbraut 13 sem er í miðbæ Akranes. Þar verður aðstaða til morgunverðar og funda. Eldhús aðstaða er í húsinu til að laga sér kvöldmat.
Þeir sem eru í gistingu verða að koma með dýnur og annan viðlegubúnað sjálfir.
Dagskrá:
Sunnudaginn 5. júlí er mæting á Akranesi byrjað verður á að sjósetja báta og er frjáls siglingtími þann daginn. Um kvöldið verður farið yfir uppbyggingu vikunnar. Annars verða dagarnir skipulagðir í meginatriðum á eftirfarandi hátt:
08:00 - 09:00 Æfing í sal / útihlaup
09:00 - 09:40 Morgunmatur
09:40 - 10:30 Fundur um viðfangsefni dagsins
10:30 – 11:00 Bátar gerðir sjóklárir
11:00 - 13:00 Æfingar á sjó
13:00 - 14:00 Hádegismatur með léttum fundi á eftir
14:00 - 15:30 Æfingar á sjó
15:30 - 16:00 Millimál / kaffi
Föstudaginn 10. júlí og laugardaginn 11. júlí verður siglingakeppni, nánara fyrirkomulag kynnt síðar. Dagskrá gæti þó litið út á þessa leið.
08:00 - 09:00 Æfing í sal / útihlaup
09:00 - 09:45 Morgunmatur
09:45 - 10:00 Skipstjórafundur
11:00 - Fyrsta viðvörunarflaut
13:00 - 14:00 Hádegismatur
14:00 - Fyrsta viðvörunarflaut
Millimál / kaffi þegar komið er í land
Frágangur og brottför sunnudaginn 12. júlí en ekki verður boðið upp á mat eða kaffi þann daginn.
Þjálfarar
Yfirþjálfari verður Tom Wilson en auk hans koma þjálfarar frá siglingafélögunum á landinu og sameina þeir krafta sína í að gera þessa viku einstaklega skemmtilega og eftirminnilega.
Matarmál
Innifalið í þátttökugjaldinu er:
Morgunverður, brauð, álegg, morgunkorn ofl. Sem framreiddur er í Þorpinu.
Hádegisverður, t.d. súpa ofl.
Millimál / kaffi, t.d. brauð og ávextir
Grillpartí fimmtudaginn 9. júní. (staðsetning nánar auglýst síðar)
Eldhús er í gistiaðstöðunni og verður sjálfsagt að nota það á kvöldin.
Kostnaður
Gjald fyrir æfingabúðir er fyrst og fremst matarkostnaður og gildir því einu hvort heldur sem gist er í sameiginlegri aðstöðu eða ekki. Gert er ráð fyrir að verðið verði um 19.000 krónur. (Sama gjald er fyrir aðstandendur og þjálfara) Hægt er fyrir aðstandendur að kaupa sig sérstaklega inn í grillpartíið fyrir 2.500 kr.
Skráning
Skráningin fer fram hjá félögunum og skulu þátttakendur tilgreina hvort þeir séu í gistingu í skóla. Þá eru aðstandendur einnig beðnir um að skrá sig í mat eingöngu annars vegar eða hins vegar í mat og gistingu ef ætlunin er að taka annað hvort.
Félögin eru svo beðin um að koma skráningarlistum sínum til Siglingasambands Íslands aðila eigi síðar en 1. júlí: netfangið er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
**Annað **
Félögin eru beðin um að skaffa umsjónar og ábyrgðarmenn þeirra þátttakenda sem verða í gistingu í skóla. Þeir ábyrgðar aðilar sem koma með þátttakendur geta átt vona á að fá fleiri minniháttar störf sem fylgja æfingabúðum sem þessum.
Afþreying
Fjölmargt er í boði á Akranesi og nágreni fyrir foreldra og aðstandendur. Fjölmargir veitingastaðir eru í bænum auk safna og útivistarmöguleika. Við hvetjum alla til að taka reiðhjólin með. Allar nánari upplýsingar um bæinn og afþreyingu þar má finna á http://www.west.is/is/west/town/akranes